Kaup Skilmálar

Skilaréttur

Eftirfarandi kaupskilmálar gilda fyrir kaup á vefsíðu ÞWSegura hér eftir  nefnt smámunir.is.

Með því að smella á borga ertu að samþykkja að þú hafir lesið og samþykkt Skilmála

Kaupskilmáli
Smamunir.is er mikið í mun að viðskiptavinir okkar séu ánægðir með þá upplifun
sem þeir eiga þegar þeir versla hjá okkur. Við bjóðum uppá 14 daga skilarétt á öllum keyptum vörum í vefverslun okkar.
Meginupplýsingar
Þessi skilmáli gildir um sölu á vöru hjá Smamunir.is til neytenda.
Skilmálinn, sem staðfestur er með staðfestingu á kaupum, er grunnurinn að viðskiptunum.
Um neytendakaup þessi er fjallað um í lögum um neytendakaup, lögum um samningsgerð, lögum um rafræn viðskipti og aðra rafræna þjónustu, lögræðislög og lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga.

Skilaréttur
Kaupandi getur skilað vöru keyptri af seljanda innan 14 daga, valið nýja eða fengið hana endurgreidda að fullu. Við skil á vöru þarf hún að sjálfsögðu að vera í upprunalegu ástandi ásamt umbúðum, en ekki er skilyrði að varan sé ónotuð þegar henni er skilað.
Seljandi áskilur sér rétt til að sannreyna að varan sé í lagi, þó innan eðlilegra tímamarka.  Seljandi áskilur sér rétt til þess að koma í veg fyrir alla misnotkun á 14 daga skilarétti.

GILDIR FYRIR ALLAR VÖRUR

Kaupnóta er skilyrði fyrir vöruskilum.
Ef valið er að fá vöru endurgreidda er skilyrið að kaupnóta sé fyrir hendi.
Varan þarf að vera í upprunalegu ástandi

Æskilegt er að varan sé í upprunalegum umbúðum.
Algjört skilyrði er að allir aukahlutir séu með vörunni
Smamunir.is áskilur sér rétt til að prófa vöruna ef þörf krefur innan eðlilegra tímamarka.

Pöntun
Pöntun eru bindandi þegar hún er skráð á netþjón seljanda. Það gerist þegar kaupandi hefur staðfest pöntun á netsíðum Smamuna.is með greiðslu vöruverðs á þeim greiðslugáttum sem í boði eru.
Seljandi er einnig bundinn til að afgreiða pöntun kaupanda svo lengi sem hún er í samræmi við vöruúrval og verðlagningu. Allar pantanir þar sem grunur um að brögð séu í tafli og/eða þar sem hugbúnaðargalli hefur áhrif eru afturkallaðar..
Kaupandi hefur rétt á að rifta kaupum samkvæmt lögum um neytendakaup.

Seljandi sendir kaupanda staðfestingu þegar pöntun er skráð, þó aðeins ef að kaupandi hefur skráð netfang sitt við kaupin. Kaupanda er bent á að kynna sér gaumgæfilega pöntunarstaðfestingu þegar hún berst. Einng ætti að ganga úr skugga um að hún sé í samræmi við fyrirhugaða pöntun.

Frávik frá pöntun og pöntunarstaðfestingu skal túlkað sem nýtt tilboð frá seljanda sem að hægt er að afþakka eða samþykkja. Kaupandi hefur einnig rétt til að láta upprunalega pöntun gilda svo lengi sem hún er í samræmi við það sem seljandi bauð upp á.

Upplýsingar
Seljandi veitir upplýsingar um vörur eftir bestu vitund hverju sinni. Seljandi birtir allar upplýsingar með fyrirvara um bilanir, vírusa, prent-, birtingar- og innsláttarvillur í texta, verðum og myndum.

Ennfremur áskilur seljandi sér rétt til að aflýsa í heild eða að hluta til pöntun kaupanda ef að varan er uppseld. Undir þeim kringumstæðum fær kaupandi tilkynningu ásamt upplýsingum um hvað gæti mögulega hentað  í staðinn. Kaupandi fær þá möguleika á að samþykkja þá tillögu eða aflýsa pöntun í heild sinni.

Verð
Verð eru á stöðugum breytingum hjá seljanda vegna samkeppni og verðbreytinga birgja. Verðhækkanir sem verða eftir pöntun viðskiptavinar eru ekki afturkræfar. Það verð gildir sem var í gildi þegar pöntun var gerð og kemur fram á pöntunarstaðfestingu..
Heildarkostnaður er tekinn fram áður en kaupandi staðfestir pöntun endanlega(skref 3 í vefverslun). Þar er tekinn fram allur kostnaður við pöntun s.s. þjónustu, sendingu o.s.frv.

Greiðsla
Hægt er að inna greiðslu af hendi með bankamillifærslu, greiðslukorti eða skuldfærslu á viðskiptareikning. Ef greitt er með greiðslukorti eða skuldfærslu á viðskiptareikning er upphæðin skuldfærð við afgreiðslu pöntunarinnar af lager. Ef greiðsla fyrir vefpöntun berst ekki innan 8 daga, áskilur seljandi sér rétt til að aflýsa pöntuninni. Ef greitt er með bankamillifærslu eru pöntun sett í tiltekt þegar millifærsla hefur verið staðfest.
Vandamál með viðskipti tengd viðskiptareikningi falla undir skilmála reiknings.

Afhending og seinkun
Pantanir eru settar í tiltekt um leið og greiðsla er staðfest, afgreiðslutími á pöntun fer svo eftir fjölda pantana en við mv. að pöntun sé komin á næsta pósthús við þig 3-5 virka daga eftir að pöntun er greidd ef engin vandamál koma upp.
Afhending telst vera innan eðlilegra tímamarka frá útgáfudegi reiknings. Tekið er fram í kaupferlinu hverju má búast við miðað við valda sendingarleið. Seljandi afhendir vörur einungis innan Íslands.

Ef afhendingu seinkar mun seljandi tilkynna það til kaupanda ásamt upplýsingum um hvenær pöntunin verður tilbúin til afhendingar eða bjóða staðgengilsvörur ef að varan er uppseld.

Afhendingarmátar í Vefverslun Smamuna.is eru; Senda á næsta pósthús til viðtakanda, heimkeyrsla með póstinum (þar sem það er í boði)

Pósturinn: Allar pantanir yfir kr. 20.000 krefst undirskriftar korta/reikningseiganda gegn framvísun persónuskilríkja þ.e. passa eða ökuskírteinis. Pantanir undir kr. 20.000 eru afhentar aðila á afhendingarstað . Ef að enginn er við er tilkynning stungið inn um bréfalúgu ef kostur er.
Allar skemmdir á vörum af hendi flutningsaðila eru á þeirra ábyrgð og að fullu bætt gagnvart viðskiptavin. Skemmdir eftir að vara hefur verið afhent er á ábyrgð kaupanda.
Ef að afhending vöru í heimakstri reynist árangurslaus er hægt að óska eftir nýjum afhendingartíma gegn gjaldi sem greitt er beint til póstsins.

Yfirferð á vörum
Eftir að kaupandi hefur móttekið pöntunina þarf hann að kanna hvort hún sé í samræmi við pöntunarstaðfestinguna, hvort eitthvað hafi skemmst í flutningi og að allar vörur séu samvkæmt vörulýsingu og ógallaðar.
Skilmálar þessir gera ráð fyrir að kaupandi hafi lesið og kynnt sér leiðbeiningar og/eða handbók sem fylgja keyptri vöru við afhendingu,.
Eðlilegur athugunartími viðskiptavinar telst vera innan 14 daga. Eftir 14 daga áskilur seljandi sér rétt til að sannreyna staðhæfingu kaupanda innan eðlilegra tímamarka áður en leyst er úr umkvörtunarefni kaupanda. Í flestum tilfellum felur það í sér athugun hjá viðurkenndum þjónustuaðila.

Réttur við galla eða vöntun
Ef að varan er gölluð eða það vantar eitthvað í vöruna er seljanda skylt að bjóða kaupanda viðgerð, nýja vöru, afslátt eða afturköllun kaupa. Það fer eftir atvikum hvaða leið er valin hverju sinni.
Tilkynning á galla verður að berast munnlega eða skriflega. Mælt er með að tilkynningin berist innan 14 daga frá því galli uppgötvast. Vegna skráningargildis er mælt með að að kaupandi sendi tölvupóst um gallann og geymi afrit. Seljandi sendir staðfestingu til baka um móttöku tölvupóstsins.

Ábyrgð
Ábyrgðir seljanda hafa ekki  í för með sér takmarkanir á rétti sem á er kveðið um í lögum um neytendakaup. Ábyrgð vegna galla á vöru er 2 ár eftir kaupdagsetningu til einstaklinga Ef um ræðir sölu á vöru til fyrirtækis er ábyrgð á galla 1 ár samkvæmt neytendalögum og lögum um lausafjárkaup. Ef söluhlut er ætlaður verulega lengri líftími en almennt gerist þá er frestur til að kvarta 5 ár.

Ábyrgð er ekki staðfest nema að kaupnótu sé framvísað.

Ábyrgðin nær ekki til eðlilegs slits tækis eða notkunar á rekstrarvörum þ.e.a.s. hún nær ekki til tækja sem eðlilegt þykir að endist skemur en 2 ár. Til að mynda er rafhlaða fartölva rekstrarvara og getur þurft að endurnýja fyrir lok vélbúnaðar ábyrgðar. Fartölvu framleiðandi veitir þó 12 mánaða ábyrgð óháð notkun á rafhlöðum. Eðlilegt er að endurnýjun getur átt sér stað bilinu 1-2 ár.   Ábyrgð fellur úr gildi ef tækið hefur verið opnað eða átt hefur verið við það án yfirumsjónar/samþykkis seljanda þrátt fyrir að þar hafi verið að verki verkstæði og/eða viðurkenndur aðili. Ábyrgðin fellur einnig niður ef rekja má bilun til illrar eða rangrar meðferðar.

Í sumum tilfellum eru einstakar vörur eða vörumerki með lengri ábyrgðartíma. Í þeim tilfellum sem það á við er slíkt tekið fram.

Seljandi er ekki skuldbundinn til að taka þátt í viðgerðarkostnaði, gefa afslætti, skipta út vöru o.s.frv. eftir 2 ára ábyrgðartíma.. Seljandi þarf þó að taka tillit til 5 ára kvörtunarfrests ef meðallíftími tækis er ætlaður verulega lengri en almennt gerist.
Seljandi áskilur sér rétt til að sannreyna að galli eða bilun heyri undir ábyrgðarskilmála, þó innan eðlilegra tímamarka. Ef að til úrlausnar ábyrgðar kemur, er seljanda skylt að bjóða kaupanda viðgerð, nýja vöru, afslátt eða afturköllun kaupa. Það fer eftir atvikum hvaða leið er valin hverju sinni.
Persónuvernd
Farið er með allar persónuupplýsingar sem seljandi móttekur sem algjört trúnaðarmál og þær aðeins nýttar í þeim tilgangi að klára viðskiptafærslu.
Kaupanda gefst hins vegar kostur á að fá send tilboð í tölvupósti og mun seljandi þá aðeins nota þær upplýsingar sem til þess þarf s.s. póstfang.

Eignarréttur
Seldar vörur eru eign seljanda  þar til kaupverð er að fullu greitt.
Reikningsviðskipti eða önnur lánaform afnema ekki eignarétt seljanda fyrr en full greiðsla hefur borist.

Úrlausn vafamála
Ávallt skal reyna að leysa öll mál á sem einfaldastan hátt. Ef það er ekki mögulegt er hægt að bera málið undir Kærunefnd þjónustu og lausafjárskaupa sem hýst er af Neytendastofu.. Sem síðasta úrræði er hægt að fara með málið fyrir dómstóla. Það skal gera í íslenskri lögsögu og í lögsagnarumdæmi seljanda .

Þjónusta og upplýsingar
Kaupanda er bent á að senda tölvupóst með öllum þeim upplýsingum er varða kaupin á postur@smamunir.is til að fá úrlausn á því sem hann vantar.